Vakna í skólann klukkan sjö Hlusta á röfl um mengi og magann á beljum Fæ mér kók með stelpunum, hangi í sjoppunni og fletti Sönnum Sögum. En einn dag komu þeir,við sáum þá bera inn Kók í kassavísmeð uppbrettar ermar.
Þótt þeir séu þrítug Erum við þó allveg bálskottnar í þeim. Andaglasið sagði okkur Að við skildum senda þetta lag í þáttinn. Svo við settumst upp í rúm og brendum reykelsi, Drógum fyrir gluggan og sömdu þetta bréf.
Við sendum æðislegar flippkveðjur til gæjanna á kókbílnum, Með von um að þeir fari að taka eftir okkur allra fyrst, með þessu lagi.
Helgin var ömurleg, sáum Moldrokk leika í Festi. En lolla Matt og Vala Buff Stungu af með Kók gæjunum sætu. Svo nú er ég bara ein og er ótrúlega svekkt, snökkti í servíettu safnið og sit við skattholið.
Sendi ömurlegar svik og pretthveðjur til Lollu matt og Völu Buff, með von um að þær nái ekki kók bílnum og þær pipri í herbergi á Reykjalundi.