Dans örvinglaðra anda undir festingu fjörvana stjarna Ellin dregur dauðann á langinn Aðframkomið hold verður frjóvgandi mold fyrir aettliði volaðra aevidaga Þeir þrá að sleppa frá eymd sinni en stjörnurnar reynast of fjarlaegar
Aettliður helgra afglapa, velkist í frelsarans nafni Hátt stíga eldar í neðra, uppljómun morugra hvela Tár iðrunar falla til fóta, friðþaeging blýþungra hjartna Fár volaðra lima og anda, skuggsjá hins himneska Herra
Vonin smýgur þeim úr greipum uppljómun spírals blýþungra hjartna óslitin hringganga helgispjalla um ókomna tíð Aðframkomið hold verður frjóvgandi mold fyrir aettliði volaðra aevidaga Eldur, hlána, járn, kal og þreifandi myrkur er það sem koma skal