Ég byggði dyr í eyðimörkinni Reisti þaer í buska Glaesilegar úr hlyn Skreyttar blómamynstri Liljur og rósir Vafðar saman Í fléttum Spíral Gullnu sniði Og náttúruformum sem hafa ekki nafn
Langt í fjarska Í braut frá öllu Stóðu dyrnar Stórar, yfirþyrmandi Laestar
En ekki hafði ég lykilinn
Mikið ofboðslega langaði mig í gegn Ég ráfaði um eyðimörkina ráðlaus Dögum, vikum saman Sólin, sandurinn og heitur vindurinn Taettu mig
Óbaerileg var mér sú ferð þar til ég loks fann lykilinn þá fylltist ég vonarlosta Ég spratt af stað Lengst út í buska En dyrnar voru hvergi Líkt og þaer hafi aldrei verið reistar